Monday, December 3, 2007

Stutt yfirlit

Nú er ég búinn með 30 færslur en mun örugglega halda áfram að blogga í jólafríinu þar sem ég ætla mér að horfa á slatta af bíómyndum í fríinu sérstaklega eftir hálskirtlatökuna og miða við að klára stóran hluta 102myndalistans. Við vinirnir erum að pæla í að gera stuttmynd sem einstaklingsverkefni en það gæti líka verið að ég klippi saman trailer úr einhverri bíómynd ég sé bara til eftir áramót. Annars vil ég bara þakka fyrir önnina, þetta er án efa ein áhugaverðasta námsgrein sem ég hef verið í. Mér finnst Siggi eiga mikið hrós skilið, þetta er búið að vera gaman.

2 comments:

Jón said...

12 færslur er alveg vel epískt

Siggi Palli said...

Umsögn um blogg
Tekur þetta á öflugum lokasprett. Nær 30 færslum
Færslurnar eru í lagi og uppfylla almennt kröfur, en sumar færslurnar eru svona lágmarksfærslur og standast ekki samanburð við bestu bloggin í námskeiðinu. Þess vegna á ég erfitt með að gefa fullt hús stiga.
Linkar í klipp á youtube er hins vegar mjög fínt "touch".
9,5